Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar spítalans í annað húsnæði. Stöðugt verði að vinna að nýjum úrræðum. Langan tíma taki að hrinda þeim í framkvæmd og þegar þau eru tilbúin til notkunar hafi mikið bæst í hóp þeirra sem spítalinn verður að þjónusta. „Þetta er erfið staða vegna þess að það er oft seint gripið inn í mjög alvarlegar aðstæður,“ segir Runólfur. Nauðsynlegt sé að grípa inn í stöðuna. Fráflæðisvandi spítalans sé mikill. „Við erum að tala um spítala sem er frekar lítill í samanburði við önnur lönd. Við erum með tiltölulega fá legurými miðað við íbúafjölda hérna og sérstaklega í ljósi þess að við höfum ekki önnur sjúkrahús sem eru af þeirri stærð sem þarf. Það gerir það að verkum að þegar yfir hundrað einstaklingar eru enn inni á spítala, sem hafa lokið meðferð, vantar rými fyrir þá bráðveiku sem koma inn.“ Runólfur ræddi vanda Landspítala í Kastljósi í kvöld. Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar út úr aðalspítalabyggingum til að skapa rými. Stöðugt verði að vinna að nýjum úrræðum þar sem strax fenni í sporin. „Það fennir strax í sporin“ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu gerði í dag athugasemdir við stöðu brunavarna á bráðamóttöku Landspítalans. Það er ekki í fyrsta sinn sem eftirlitsaðilar gera athugasemdir við aðstæður á spítalanum. „Það er örtröðin í þessu litla rými sem gerir það að verkum að aðstæður eru óboðlegar þegar kemur til brunavarna. Við getum ekki breytt því nema með því að skapa betri aðstæður og það gerist ekki öðruvísi heldur en að einstaklingar sem hafa lokið meðferð á spítalanum verði færðir annað,“ segir Runólfur. Úrræði hafa bæst við á síðustu árum en þau duga ekki til. „Það fennir strax í sporin.“ Til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar í aðrar byggingar Runólfur segir stjórnendur Landspítalans hafa lítið annað gert síðustu 4 ár en að reyna að finna leiðir til að milda vanda bráðaþjónustunnar. „Það sem við höfum verið að gera, og það er bara í takt við þá þróun sem hefur verið annars staðar, það er að skapa öðruvísi úrræði. Þannig að hluti þeirra sem áður hefur farið inn á bráðamóttökuna fær þjónustuna annars staðar,“ segir Runólfur. Þar á meðal séu notaðar dagdeildir og jafnvel göngudeildir. „Eitt af þeim úrræðum sem við höfum lagt til, bara á allra síðustu misserum, er að færa göngudeildarstarfsemi sem þarf ekki endilega að vera inni í aðalspítalabyggingunum annað til þess að búa þannig til legurými. Því við búum ekki við betri göngudeildaraðstöðu en svo, í þessum gömlu byggingum, að það eru gamlar legudeildir sem eru notaðar undir göngudeildir.“ Við það gætu losnað 45-50 rými. Þó verði ekki hægt að færa alla þjónustu göngudeildar út fyrir aðalspítalabyggingar. Runólfur segir vinnu við slíkt úrræði ekki komna langt á leið. „Vandinn er svo brýnn að það verður að bregðast við hratt. Ég sé ekki aðrar leiðir heldur en að færa einstaklinga frá spítalanum eins og staðan er í dag.“