Stjórnvöld íhuga að breyta reglugerðum um gervigreind

Stjórnvöld í Kanada íhuga nýjar reglugerðir um spjallmenni ef gervigreindarfyrirtækið OpenAI bætir ekki öryggiseftirlit sitt með færslum notenda. Forsvarsmenn OpenAI funduðu með Evan Solomon, ráðherra gervigreindar í Kanada, í gær. Solomon kallaði forsvarsmenn fyrirtækisins til fundar vegna yfirlýsingar fyrirtækisins um að það hefði bannað Chat GPT-reikning Jesse van Rootselaar, sem myrti 8 manns í skotárás í Tumbler Ridge nýverið. Reikningi hennar var lokað í júní en OpenAI gerði lögregluyfirvöldum ekki viðvart vegna vafasamra færslna Rootselaar. Dómsmálaráðherra Kanada, Sean Fraser, fer fram á að OpenAI geri breytingar á öryggiseftirliti sínu og ef fyrirtækið bregðist ekki við þessari beiðni muni ríkisstjórn Kanada setja á reglugerðir til að ná fram breytingum. Í tilkynningu frá OpenAI segir að fyrirtækið hafi undanfarna mánuði hert öryggisráðstafanir fyrirtækisins og breytt fyrirkomulagi á tilvísunum mála eða ábendinga til lögreglu þegar grunur leikur á einhverju glæpsamlegu athæfi.