Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir að þjóð hans geti látið sér lynda við Bandaríkin ef Bandaríkin viðurkenni landið sem kjarnorkuþjóð. Þetta kom fram í viðtali norðurkóreska ríkisfjölmiðilsins Korean Central News Agency (KCNA) við leiðtogann í dag. Hann vill að Bandaríkin dragi úr stefnu sinni gagnvart Norður-Kóreu, sem Jong Un segir fjandsamlega. Leiðtoginn sagði Suður-Kóreu enn vera helstu óvinaþjóð Norður-Kóreu. Yfirvöld í Pjongjang breyttu stjórnarskrá sinni árið 2024 og þá var Suður-Kórea skilgreind formlega sem „fjandsamlegt ríki“ í fyrsta sinn. Þessi ummæli Jong Un hafa vakið athygli en vangaveltur eru um að Donald Trump Bandaríkjaforseti fundi með Jong Un í apríl þegar hann fer í heimsókn til Kína. Trump hefur sagt að hann sé tilbúinn að funda með leiðtoga Norður-Kóreu og hefur einnig sagt að ríkið sé nokkurs konar kjarnorkuþjóð. Ef af fundi þeirra verður, mun fundurinn verða tímamótafundur en andað hefur köldu í samskiptum Bandaríkjanna og Norður-Kóreu síðan 2019. Þáverandi Bandaríkjastjórn fór fram á að Norður-Kórea myndi afhenda kjarnorkuvopnabúr sitt og í staðinn yrði viðskiptaþvingunum aflétt. Síðan hefur Norður-Kórea aukið samskipti sín við Kína og Rússland og Jong-Un og Vladimir Putin voru sérlegir gestir Xi Jingping forseta Kína á stórri hersýningu kínverskra stjórnvalda í Peking á síðasta ári. Þúsundir norðurkóreskra hermanna hafa barist með Rússlandsher í Úkraínu. Norður-Kórea er sögð fá ýmislegt í staðinn, svo sem hernaðartæknibúnað, matvæli og orkubirgðir og þannig komist stjórnvöld fram hjá viðskiptaþvingunum. „Þar sem stjórnvöld í Moskvu sjá nú fyrir verulegri efnahagslegri líflínu hefur dregið úr áhrifum viðskiptaþvingana Sameinuðu þjóðanna og Kim Jong Un er ekki undir sama þrýstingi og áður að bregðast við umræðunni í Washington,“ segir Seong-Hyon Lee, sérfræðingur við Asíumiðstöð Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, í viðtali við AFP fréttastofuna.