Demókratar saka Bandaríkjastjórn um yfirhylmingu í Epstein-málinu

Demókratar saka ríkisstjórn Donalds Trumps um mestu yfirhylmingu í sögunni vegna nýrra upplýsinga um óbirt gögn í Epstein-málinu. Ríkisfjölmiðillinn NRP fann glufur í vitnisburði konu frá árinu 2019 sem sakaði Bandaríkjaforseta um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi þegar hún var á aldrinum 13–15 ára. Númerakerfi birtra gagna gefur til kynna að fulltrúar alríkislögreglunnar FBI hafi tekið fjögur viðtöl við konuna sem um ræðir. Aðeins voru birt gögn úr einu viðtali og í því beinast ásakanir hennar einkum að kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein. Gögnin úr hinum viðtölunum þremur, samtals um fimmtíu síður, eru ekki á vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins þar sem gögnin í málinu voru birt. Fjölmiðillinn The New York Times og kapalsjónvarpsstöðin MS NOW styðja þessar fullyrðingar NRP. Demókratinn Robert Garcia, sem situr í rannsóknarnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, staðfestir að umrædd gögn hafi ekki verið birt. Demókratar krefjast þess að öll gögn verði birt í málinu og vilja rannsaka af hverju hluti þeirra var ekki birtur. Dómsmálaráðuneytið segir að verið sé að kanna málið og gögnin verði birt ef þau eru til. Ráðuneytið neitar því að gögnum hafi verið eytt og að hluti gagnanna gæti verið óbirtur vegna persónurekjanlegra upplýsinga sem fram komi í þeim. Bandaríkjaforseti hefur ávallt neitað því að hafa brotið af sér eða haft einhver tengsl við kynferðisafbrot Jeffrey Epstein. Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra, mun koma fyrir þingnefnd í dag um tengsl hennar og eiginmanns hennar Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta, við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Nafn Bills Clintons kemur margsinnis fyrir í Epstein-skjölunum. Hvorugt þeirra er grunað um eitthvað saknæmt í tengslum við Epstein og bæði neita því að hafa vitað af kynferðisbrotum hans. Þau vilja að vitnisburður þeirra verði opinber. Bill Clinton mun koma fyrir nefndina og bera vitni á morgun.