Oftar hefur þurft að hreinsa götur Reykjavíkurborgar á undanförnum mánuðum en ráð var gert fyrir og kemur kostnaður við götuhreinsun því til með að hækka. Bætist aukakostnaðurinn því við þær 346 milljónir króna sem áætlaður er í götuhreinsun á hverju ári, en sá kostnaður miðar við að hreinsað sé þrisvar.