Samninganefndir Íran og Bandaríkjanna funda um kjarnorkusamning í dag

Samninganefndir Íran og Bandaríkjanna ætla að funda í Genf í Sviss í dag og reyna að ná samningum um kjarnorkumál. Bandaríkjaforseti Donald Trump sagði í stefnuræðu sinni í gær á Bandaríkjaþingi að Íranir væru búnir að þróa kjarnorkuvopn sem gætu ógnað Evrópu og bandarískum herstöðvum í nágrannalöndum Íran. Þá væru Íranar einnig að þróa langdræg kjarnorkuvopn sem gætu hæft Bandaríkin. Utanríkisráðuneyti Írans segir þessar fullyrðingar lygar. Fyrri viðræður samninganefndanna hafa ekki borið árangur fram til þessa og Bandaríkjaforseti hefur sagt bandaríska herinn tilbúinn til árása á Íran.