Í dag: Bikarúrslit í boði hjá körlunum

Í dag fara fram undanúrslitaleikir í bikarkeppni karla í handbolta. Dagskráin byrjar á stórslag Hafnarfjarðarliðanna og endar á keppni spútnikliðanna ÍR og KA. Báðir leikirnir eru sýndir á RÚV 2. 26. febrúar - 18:00 - FH - Haukar - RÚV 2 26. febrúar - 20:15 - ÍR - KA - RÚV 2 Nú þegar er ljóst að Haukar mæta Val í bikarúrslitum kvenna klukkan 15:30 á laugardaginn. Úrslitaleikur karla er klukkan 18:30. Hvað segir sagan? Stysta biðin eftir bikarmeistaratitli hjá liðunum fjórum er sjö ár en sú lengsta 22 ár. ÍR fór síðast í úrslit 2014 þar sem liðið mátti þola tap gegn Haukum. Breiðholtsliðið hefur í tvígang orðið bikarmeistari, árin 2005 og 2013. KA hefur orðið bikarmeistari þrisvar, árin 1995, 1996 og 2004. Liðið fór síðast í úrslit árið 2022 og tapaði þar gegn Val. FH hefur mátt þola langa bið eftir bikarúrslitaleik en liðið vann Val árið 2019. FH-ingar hafa alls sex sinnum orðið bikarmeistarar. Það gerðist árin 1975, 1976, 1977, 1992, 1994 og 2019. Haukar fóru síðast í úrslit árið 2023 og töpuðu þar gegn Aftureldingu. Þeir hafa orðið bikarmeistarar sjö sinnum, næstoftast allra liða. Haukar lyftu bikarnum árið 1980, 1997, 2001, 2002, 2010, 2012 og 2014.