Albani á fertugsaldri kveðst vera fórnarlamb í máli sem snýr að smygli á sögulegu magni ketamíns og mikils magns MDMA. Hann hafi talið sig eiga að gera manni sem væri ekki með dvalarleyfi greiða en í staðinn hafi verkstæði sem hann hafði aðgang að verið notað til að fjarlægja fíkniefnin úr bifreið.