Víða erfið færð að morgni

Þungfært eða þæfingur er á vegum víða á norðvestanverðu landinu og enn víðar er hálka á vegum. Þungfært er á Fróðárheiði og þæfingur í Svínadal og á Holtavörðuheiði. Ófært er á Bröttubrekku. Víða er snjóþekja á Vesturlandi og starfsmenn Vegagerðarinnar eru enn að meta aðstæður. Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og þæfingsfærð á Hálfdáni, Mikladal og í Súgandafirði. Enn er verið að kanna aðstæður á vegum. Þungfært er á Vatnsskarði og þæfingsfærð á leiðum í kringum Sauðárkrók. Snjóþekja er á vegum í Húnavatnssýslu.