Hvassviðri og varasöm akstursskilyrði

Hætt er við því að akstursskilyrði verði varasöm við Breiðafjörð og á Vestfjörðum í dag vegna norðvestanhríðar. Allhvasst verður með snjókomu og skafrenningi. Skyggni verður því lítið. Gular viðvaranir eru í gildi í þessum landshlutum til klukkan átta í kvöld. Á höfuðborgarsvæðinu hlánar nokkuð framan af degi með suðaustan hvassviðri og rigningu. Snjórinn sem féll í gær er farinn að bráðna en sums staðar hefur hann þjappast og getur þar verið hált. Vindáttin snýst þegar líður á daginn og frystir með snjókomu eða éljum á vestanverðu landinu. Hvassast verður norðantil á landinu. Veðurfræðingur Veðurstofunnar segir að skilin sem fylgja lægð sem kemur inn á Faxaflóa séu ansi skörp og hvetur fólk til að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð því breytingarnar geti verið snöggar. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðaustan átta til fimmtán og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 1 til 6 stig. Gengur í norðvestan 10-18 með snjókomu eða éljum á vestanverðu landinu síðdegis og frystir, hvassast norðvestantil. Suðvestan átta til fimmtán í nótt og á morgun með éljum um landið sunnan- og vestanvert, en styttir upp og léttir til á Norður- og Austurlandi. Frost að tólf stigum, mildast syðst, en kaldast inn til landsins norðaustanlands.