Mesti liðssafnaður í tvo áratugi

Bandaríkin hafa dregið saman mikinn herafla í Mið-Austurlöndum og Evrópu undanfarna daga, samkvæmt því sem þarlendir fjölmiðlar hafa rakið. Viðbúnaðurinn er sagður sá mesti á svæðinu frá því fyrir innrásina í Írak árið 2003. New York Times, Washington Post og CNN hafa öll lagst yfir gervihnattarmyndir og fluggögn til að átta sig á umfangi heraflans. Liðssafnaðurinn hófst af alvöru eftir að kjarnorkuviðræður Bandaríkjanna og Írans sigldu í strand þann 17. febrúar síðastliðinn. Samkvæmt frétt Washington Post hafa yfir 150 herflugvélar verið fluttar á bækistöðvar nærri Íran á þessum stutta tíma. Forsetinn vegur og metur valkostina Donald Trump er sagður hafa ýmsa valkosti, kjósi hann að skipa fyrir um árás. CNN segir ákvörðun Trumps ekki liggja fyrir en hann geti valið allt frá takmörkuðum og nákvæmum árásum á tiltekin skotmörk til umfangsmikilla loftárása sem staðið gætu vikum saman. Þótt ekki sé með fullu ljóst hver markmið forsetans eru, en talið er að ákvörðun um næstu skref gæti legið fyrir strax eftir helgi. Flugmóðurskip og loftvarnir Umfang vígbúnaðarins er yfirþyrmandi. Flugmóðurskipið Abraham Lincoln er þegar á svæðinu, ásamt þremur herskipum vopnuðum Tomahawk-flugskeytum. Þá hefur Pentagon skipað öðru flugmóðurskipi, Gerald R. Ford, ásamt fylgiskipum, að halda á vettvang. Staðsetning heraflans Kortið sýnir hvar herafli hefur verið byggður upp frá 22. janúar, samkvæmt talningu CNN. Tyrkland Teheran 1 Íran Írak 2 Persaflói D 4 B 5 Sádí-Arabía A 3 Rauðahaf C Arabíuhaf E Flugvélar færðar eftir 22. janúar Krít, Grikkland RC-135V (njósnaflugvél) Azraq, Jórdanía F-15 Eagle (orrustuþota) E/A-18G Growler (rafeindaherþota) A-10 Warthog (árásarflugvél) F-35 (orrustuþota) Al Kharj, Sádi-Arabía E-11A BACN (samskiptaflugvél fyrir vígvöll) F-16 Fighting Falcon (orrustuþota) P-8A Poseidon (kafbátaleitarvél) E-3 (snemmviðvörunar- og samskiptaflugvél) Awali, Barein P-8A Poseidon (kafbátaleitarvél) Al Dhafra, Sameinuðu arabísku furstadæmin MQ-4C Triton (langdræg ómönnuð njósnaflugvél sem flýgur mjög hátt) Sjóher Rauðahaf USS Delbert D. Black (tundurspillir) Persaflói USS Tulsa (strandvarnaskip) USS Canberra (strandvarnaskip) Norðurhluti Arabíuhafs USS Abraham Lincoln (flugmóðurskip) og fylgiskip: USS Frank E. Petersen Jr. (tundurspillir) USS Spruance (tundurspillir) USS McFaul (tundurspillir) USS Pinckney (tundurspillir) F/A-18E Super Hornet (orrustuþota) EA-18G Growler (rafeindaherþota) E-2 Hawkeye (eftirlitsflugvél) MH-60S Sea Hawk (þyrlur sjóhers) MH-60R Sea Hawk (þyrlur sjóhers) F-35C Lightning II (orrustuþota) Hormuzsund USS Mitscher (tundurspillir) USS Santa Barbara (strandvarnaskip) USS Michael Murphy (tundurspillir) Á leið inn á svæðið USS Gerald R. Ford (flugmóðurskip) og fylgiskip: USS Bainbridge (tundurspillir) USS Mahan (tundurspillir) USS Winston S. Churchill (tundurspillir) F/A-18E Super Hornet (orrustuþota) EA-18G Growler (rafeindaherþota) E-2 Hawkeye (eftirlitsflugvél) MH-60S Sea Hawk (þyrlur sjóhers) MH-60R Sea Hawk (þyrlur sjóhers) C-2A Greyhound (flutningaflugvél) Beita fyrir sig dýpt og tækni Sérfræðingar segja staðsetningu herliðsins athyglisverða. Rúmlega helmingur flugvélanna hefur lent á bækistöðvum í Evrópu, þar sem þorri íranskra flugskeyta næði ekki að granda þeim. Einkum eru þetta fraktvélar og eldsneytisvélar. Nýjar gervihnattamyndir sýna meðal annars átján F-35 Lightning II orrustuþotur í Jórdaníu, en það eru nýjustu og þróuðustu orustuþotur Bandaríkjanna. Í Jórdaníu eru líka sérhæfðar EA-18G Growler vélar til rafrænnar hernaðar sem geta lamað samskiptakerfi óvinarins. Þriðjungur E-3G Sentry véla, oft kallaðar AWACS, hefur verið fluttur á svæðið. Þá hafa loftvarnir verið efldar í kringum bandarískar herstöðvar í grennd, en á milli 30.000 og 40.000 bandarískir hermenn eru staðsettir á þeim herstöðvum. Helstu herstöðvar Bandaríkjanna Kortið sýnir helstu herstöðvar Bandaríkjanna og herstöðvar sem Bandaríkjaher hefur aðgang að í nánd við Íran. Tyrkland Teheran Íran Írak Persaflói Sádí-Arabía Rauðahaf Arabíuhaf Bandarískar herstöðvar Aðrar herstöðvar, með bandarískri viðveru