Rúm fjórtán prósent evrópskra unglinga reykja svokallaðar rafrettur og er hlutfallið hvergi hærra á byggðu bóli. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir það afleiðingu vísvitandi markaðsherferðar rafrettufyrirtækja sem beint sé að unglingum og ungmennum.