BHM segir að erlent vinnuafl sé illa nýtt hér á landi og meirihluti þess sinni störfum sem séu ekki í samræmi við menntun þeirra. Íslenskt vinnuafl er að eldast og nauðsynlegt er að laða að erlent vinnuafl til landsins. Síðustu 20 árin hefur verið 37% vöxtur á vinnumarkaði og af þeim vexti hafa innflytjendur verið 73%. Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM, var gestur Morgunútvarps Rásar tvö í morgun. Samkeppni um erlent vinnuafl Tölur frá OECD sýna að 40% háskólamenntaðra innflytjenda á Íslandi sinna störfum þar sem menntun nýtist ekki sem skildi. Þetta eru hærri tölur en í löndum sem við berum okkur saman við. Ingvar Freyr segir að íslensk stjórnvöld og vinnumarkaður þurfi að gera betur. Mikil eftirspurn sé eftir sérhæfðu starfsfólki, meðal annars í grunnskólum, og því þurfi að gera betur í að taka á móti og styðja við háskólamenntaða innflytjendur. „Það getur verið að það sé ekki betur stutt við fólkið sem kemur hingað, að því sé ekki betur komið inn í störfin. Það má líka nefna að hraðinn hefur verið rosalega mikill,“ segir Ingvar Freyr. Ingvar Freyr segir að nauðsynlegt sé að taka þetta föstum tökum. Innlent vinnuafl sé að eldast en innflytjendur sem koma til landsins séu ungt vinnuafl. Á næstu árum sé nauðsynlegt að laða að erlent vinnuafl og nýta betur þann mannauð sem felst í innflytjendum. „Sérstaklega ef við horfum bara í kringum okkur, þá glíma aðrar þjóðir við þetta aldraða vinnuafl. Og það segir okkur það að það verður miklu meiri eftirspurn eftir innflytjendum á næstu árum. Við þurfum að keppa við aðrar þjóðir.“ Vilja samhæfða innflytjenda- og mannauðsstefnu BHM leggur til samhæfða innflytjenda- og mannauðsstefnu, segir Ingvar Freyr. „Að innflytjendaþörf verði tengd raunverulegri mönnunarþörf landsins. Þetta ætti að vera stefna hjá stjórnmálaflokkum.“ Ingvar Freyr segir nauðsynlegt að styðja betur við og aðstoða þau sem koma til landsins til að vinna. Fjölgun innflytjenda hafi reynt á innviði landsins. Ingvar Freyr bendir á að mikilvægt sé, í þessu samhengi, að draga úr öldrunarfordómum á vinnumarkaði. Það þurfi að huga að endurmenntun starfsfólks og hjálpa fólki að komast inn í nýja færni.