Sjálfstæðismenn búnir að raða á lista á Ísafirði

Mikil endurnýjun er á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Listinn var samþykktur í gærkvöld. Jónas Þór Birgisson lyfjafræðingur skipar efsta sætið, Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri er önnur á lista og í þriðja sæti er Martha Kristín Pálmadóttir, áfanga- og fjarnámsstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo borgarfulltrúa í kosningunum 2022 og lenti í minnihluta eftir kosningar. Meirihluti Í-listans sprakk þó þegar varamaður bæjarstjórans sem fór á þing setti sig upp á móti honum. Síðan hefur ekki verið formleg meirihluta- og minnihlutaskipting í bæjarstjórn.