Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir skáldsöguna Eldri konur og Jón Kalman fyrir skáldsöguna Himintungl yfir heimsins ystu brún. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Verðlaunin verða afhent 20.október Í umsögn Norðurlandaráðs segir að skáldsaga Evu Rúnar sé saga af jaðrinum. Aðalpersóna bókarinnar lifir með skömm sem varni henni að mynda náin og heilbrigð tilfinningasambönd. Aum sjálfsvirðing sögukonunnar storkar áreiðanleika frásagnarinnar og beinir athyglinni að bilinu milli sögunnar sem við segjum af okkur sjálfum, og sögunni sem blasir við öðrum. Útkoman er sundlandi stúdía á því hvernig auðmýking og reisn vega salt innra með manneskjunni. Í umsögn um skáldsögu Jóns Kalmans segir að ljóst sé að samtíminn andi í gegnum verkið. Útlendingaandúð fari sívaxandi, bæði á Íslandi og um alla Evrópu, og höfundur vilji vekja lesendur til umhugsunar. Erindið er ljóst og skrif séra Péturs eru ætluð framtíðinni, hann vill tryggja að grimmdarverk samtímamanna hans gleymist ekki og að falsfréttirnar nái ekki að yfirskyggja sannleikann. Verðlaunahafinn verður opinberaður 20. október, í Helsinki. Tilnefnd í ár eru eftirfarandi höfundar og bækur þeirra: Danmörk Metta Moestrup fyrir ljóðabókina Butterfly Nebula. Útgefandi: Gyldendal. Charlotte Weitze fyrir skáldsöguna Ulvemæl. Útefandi: Forlaget Gutkind. Finnland Pirkko Saisio fyrir skáldsöguna Suliko. Útefandi: Siltala. Quynh Tran fyrir skáldsöguna När andra njuter, útgefandi Förlaget/Albert Bonniers. Færeyjar Marjun Syderbø Kjælns fyrir skáldsöguna Marta, Marta, útgefandi: Ungu Føroyar. Grænland Debora H. Kleist fyrir skáldsöguna, Sarsuatitat útgefandi: Milik Publishing. Ísland Eva Rún Snorradóttir fyrir skáldsöguna Eldri konur, útefandi: Benedikt. Jón Kalman Stefánsson: fyrir skáldsöguna Himintungl yfir heimsins ystu brún. Útefandi: Benedikt. Noregur Dag Johan Haugerud fyrir skáldsgöuna Sjelesorg. Útgefandi: Forlaget Oktober. Noregur / samíska málsvæðið Sigbjørn Skåden fyrir skáldsöguna Planterhaug / Láŋtdievvá. Útgefandi: Cappelen Damm. Svíþjóð Anna Hallberg fyrir ljóðabókina AN. Útgefandi: Albert Bonniers förlag. Linda Örtenblad: Kartotek över döda och återuppståndna, smásagnasafn, Nirstedts… Álandseyjar Sebastian Johans fyrir skáldsöguna Svanhopp. Roman om död far. Útefandi: Nirstedt/litteratur.