Eva Rún og Jón Kalman til­nefnd til bók­mennta­verð­launa Norður­landa­ráðs

Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu.