Húsverndarstofa stendur í dag, fimmtudaginn 26. febrúar, kl. 17 fyrir fræðslufundi í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni. Lífið í gömlu húsi er söguefnið og að þessu sinni mun Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík, deila reynslu sinni af lífinu í húsi sínu, verndun og viðhaldi þess.