Lavrov: Enginn lokafrestur til að ljúka stríðinu

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands gaf í skyn í morgun að Rússum lægi ekkert á að ná samkomulagi um frið í Úkraínu. Fulltrúar beggja landa eru nú í Genf til að funda með erindreka Bandaríkjastjórnar um framhald formlegra friðarviðræðna í mars. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sagt að hann vilji ná friðarsamkomulagi fyrir þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, 4. júlí. Lavrov blés á þetta í viðtali við ríkissjónvarp Rússa. „Hefurðu heyrt eitthvað um lokafrest frá okkur? Við erum ekki með neinn frest, við erum með verkefni. Og við erum að klára þau.“ Dmitri Peskov talsmaður rússneskra stjórnvalda tók í sama streng í morgun. Of snemmt væri að spá um lok stríðsins og það væru mistök að stefna að einhverri ákveðinni tímasetningu.