Grindvíkingar sem hafa flutt lögheimili frá sveitarfélaginu en vilja kjósa þar í sveitarstjórnarkosningum geta nú skráð sig til þess á vef Þjóðskrár. Alþingi samþykkti á dögunum bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar þannig að fólk sem átti lögheimili í Grindavík fyrir rýminguna 10. nóvember 2023 hefur val um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem það á nú lögheimili. Á vef Þjóðskrár má finna rafræna skráningargátt en auk þess er hægt að senda erindi á stofnunina um annars konar umsóknarferli. Hér má sjá nánari upplýsingar um hverjir geta sótt um og hvernig. Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram 16. maí. Frestur til að skila inn umsókn rennur út 1. apríl.