„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“

Trump varði stórum hluta ræðunnar í að ræða efnahagsmál enda eru þau það sem kjósendum vestra finnst skipta langmestu máli, hafa í sig og á og til hnífs og skeiðar. Margir fjölmiðlar hafa farið yfir ræðu Trumps og staðreyndaprófað hana og þar sem margt sem ekki stemmir og mikið af staðreyndavillum um efnahagsmál, verðlag, ástandið á landamærunum og kosningar. Politiken segir í leiðara að Bandaríkjaforseti hefði aldrei logið jafn mikið. Þetta var til umfjöllunar í spjalli Boga Ágústssonar við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Talaði eingöngu til stuðningsmanna Fréttaskýrendur segja margir að Trump hafi verið að reyna að sannfæra eigin kjósendur um að hlutirnir væru á réttri leið og að þeir ættu ekki að snúa baki við Repúblikönum í kosningunum í haust. Þá verða meðal annars allir þingmenn fulltrúadeildarinnar og þriðjungur öldungadeildarþingmanna kjörinn. Mjög margir kusu Trump af því að hann lofaði að koma böndum á verðbólgu og bæta lífskjör. Samkvæmt könnunum telur meirihluti Bandaríkjamanna að efnahagsástandið hafi versnað og margt bendir til þess að fari fram sem horfi tapi Repúblikanar naumum meirihluta í fulltrúadeildinni í haust. Ósannindi um erlendar fjárfestingar Trump sagði í ræðu sinni að erlendar fjárfestingar í Bandaríkjunum á valdatíma Bidens hefðu verið minna en ein trilljón dollara, sem er billjón á íslensku eða milljón milljónir. Hann sagði að á því rúma ári sem hann hefði verið við völd hefði erlend fjárfesting vaxið í yfir átján billjónir. New York Times segir þetta ekki einu sinni stemma við yfirlýsingar Hvíta hússins, sem segir töluna 9,7 og þar að auki séu þar með talin óformleg loforð um framtíðarfjárfestingar sem margir sérfræðingar telji fugla í skógi. Trump í baráttuham Trump beindi orðum sinum eiginlega bara til eigin stuðningsmanna, reyndi ekki að leita sátta, var í slagsmálaham við demókrata og aðra meinta og raunverulega óvini. Hann sagði demókrata svo rúna stuðningi að þeir gætu ekki unnið kosningar nema með svindli. Hann notaði þetta sem rök fyrir breytingum sem hann vill gera á kosningalögum. Hins vegar sýna rannsóknir að kosningasvindl er mjög sjaldgæft. Heimavarnarráðuneyti Trumps kannaði tæplega 50 milljónir skráningar á kjörskrá og í ljós kom ráðuneytið taldi að kanna þyrfti nánar um 10 þúsund skráningar, eða um 0,02%. Ólík viðbrögð stuðningsmanna og andstæðinga Repúblikanar á þingi hafa margir hrósað Trump og tekið undir að Bandaríkin hafi aldrei verið jafn öflug. Demókratar leggja flestir áherslu á öll þau ósannindi sem hrotið hafi af munni forsetans. Raul Ruiz sagði til dæmis að fyrst forsetann langaði svo mjög að fá Nóbelsverðlaun ætti hann að sækjast eftir verðlaununum fyrir skáldskap. Alexander Stubb segir Pútín ekki geta unnið í Úkraínu Alexander Stubb Finnlandsforseti sagði í heimsókn til Frakklands fyrr í vikunni að Vladimít Pútín Rússlandsforseti gæti ekki unnið stríðið í Úkraínu. Fjögur ár eru frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Stubb mælti á frönsku á blaðamannafundi með Emmanuel Macron Frakklandsforseta: Stríðið hefur staðið í fjögur plús átta ár, samtals tólf ár. Mér virðist að Pútín geti ekki unnið stríðið en hann vill heldur ekki semja um frið. Það eru vandræðin sem hann stendur frammi fyrir núna. Þegar Stubb sagði stríðið hafa staðið í tólf ár er hann að vísa til innrásar og innlimunar Krím-skaga 2014. Rússland stendur veikara en fyrir innrásina Stubb hélt áfram og sagði að Pútín væri í krísu, hann gæti ekki hætt stríðinu. Hann hefði ekki náð strategískum markmiðum sínum, Finnland og Svíþjóð hefðu gengið í NATO og bandalagið væri að auka verulega varnargetu sína og stuðningurinn við Úkraínu væri óbreyttur. Margir aðrir hafa tekið undir að Rússland hafi veikst. Pútín hefði talið að Rússar gætu unnið auðveldan og skjótan sigur en raunin orðið önnur. Skelfilegar afleðingar stríðsins í Úkraínu Í úttekt Center for Strategic Studies um stríðið í Úkraínu segir: Í fyrsta lagi hefur manntjón rússneska hersins verið um það bil 1,2 milljónir (fallnir, særðir og týndir) og allt að 325.000 manns hafa fallið frá febrúar 2022. Ekkert stórveldi hefur orðið fyrir nærri jafn miklu manntjóni í nokkru stríði frá síðari heimsstyrjöldinni. Í öðru lagi sækir rússneski herinn ótrúlega hægt fram á vígvellinum. Í sókninni við Pokrovsk, til dæmis, sótti herinn að meðaltali aðeins 70 metra fram á dag. Þetta er hægara en í grimmustu sóknum síðustu aldar, þar á meðal í hinni blóðugu orrustu við Somme í fyrri heimsstyrjöldinni. Rússar hafa náð minna en 1,5 prósentum af úkraínsku landsvæði frá upphafi árs 2024. Í þriðja lagi er Rússland að verða annars eða þriðja flokks efnahagsveldi. Efnahagur landsins sýnir álag vegna stríðsins, þótt hann hafi ekki brotnað undan álaginu. Framleiðsla er að minnka, eftirspurn neytenda er að veikjast, verðbólga er enn há og landið stendur frammi fyrir vinnuaflsskorti. Hagvöxtur hægði á sér niður í 0,6 prósent árið 2025 og Rússland heldur áfram að dragast aftur úr í lykiltækni eins og gervigreind. 4 Rússland átti samtals núll fyrirtæki á lista yfir 100 efstu tæknifyrirtæki í heiminum, mælt eftir markaðsvirði. Mikilvægar aukakosningar í Manchester Gorton og Denton kjördæmið í Manchester á Englandi er á svæði þar sem Verkamannaflokkurinn hefur lengi verið mjög öflugur. Boðað var til kosninga eftir að Andrew John Gwynne sagði af sér þingmennsku. Hann var rekinn úr Verkamannaflokknum vegna niðrandi og óviðurkvæmilegra ummæla á samfélagsmiðlum. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands kom í veg fyrir að Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, fengi að bjóða sig fram en margir stjórnmálaskýrendur telja að Burnham hefði átt mjög góða möguleika á að sigra í kosningunum. Mikil óvissa um úrslit Andrew Gwynne var kjörinn með yfirburðum í þingkosningunum 2024 en kannanir benda til að staðan sé tvísýn núna eða réttara sagt þrísýn. Það eru nefnilega þrír flokkar sem taldir eru eiga möguleika á sigri, Verkamannaflokkurinn, Reform, Umbótaflokkur Nigels Farage og Grænir. Alls eru ellefu í framboði og meðal þeirra er Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið. Hann er frambjóðandi Raving Monster Loony Party, Bandóði geggjaði skrímslaflokkurinn. Flokkurinn hefur boðið fram í þingkosningum í Bretlandi í meira en fjóra áratugi en hefur ekki tekist að koma manni á þing til þessa og ekki er búist við að sir Oink breyti því. Hér má heyra Heimsglugga vikunnar Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu og Trump Bandaríkjaforseti í State of the Union-ræðu sinni. Ræðan var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Rás 1.