Síðustu fjórar vikur hafa þrettán að meðaltali greinst með inflúensu í hverri viku. Faraldurinn hófst fyrr í vetur en síðustu ár en virðist nú vera á undanhaldi. Flest voru smitin í vikunum fyrir jól en þau hafa verið mun færri það sem af er ári. Í síðustu viku greindust fimmtán með RS-veirusýkingu, flest voru smitin þremur vikum fyrr. Læknir sinnir gesti á heilsugæslu. Mynd úr safni.RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon