„Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“

Sigursteinn Arndal býst við hörkuleik í stappfullu húsi þegar lærisveinar hans í FH mæta Haukum í undanúrslitaleik bikarkeppninnar í handbolta. Hann segir það ekki skipta neinu máli að Haukar séu á heimavelli.