Gísli Rafn Ólafsson er hættur sem framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Í tilkynningu frá samtökunum segir að samkomulag um þetta hafi náðst milli stjórnar og hans. Arna Harðardóttir fjármálastjóri tekur við verkefnum framkvæmdastjóra þar til eftirmaður Gísla Rafns hefur verið ráðinn. Gísli Rafn Ólafsson.RÚV / Ragnar Visage