Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út

Hollywood-leikarinn Crispin Glover hefur verið sakaður um líkamsárás, andlegt ofbeldi, ólögmætan útburð og málshöfðun að ófyrirsynju af breskri fyrirsætu. Glover hafnar ásökununum, konan hafi brotist inn til hans og ráðist á hann þannig hann kallaði til lögreglu og sótti um nálgunarbann.