Tíu manns í á­rekstri á Suður­landi

Að minnsta kosti tveir eru slasaðir eftir að tíu manns lentu í umferðarslysi á Biskupstungnabraut norður af Borg í Grímsnesi eftir hádegi í dag, þegar árekstur varð milli smárútu og fólksbíls. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vetvangi og hópslysaáætlun hefur verið virkjuð.