Hætta við ung­linga­skóla í Laugar­dal

Borgarráð samþykkti í morgun að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Huga á að annarri staðsetningu og fara í samráðsferli að nýju með helstu hagaðilum í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu.