Þó nokkrar flugvélar Icelandair sem áttu að lenda á Keflavíkurflugvelli í dag þurftu frá að hverfa vegna slæmra veðurskilyrða. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu að þarna hafi gert veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni. Vélar frá nokkrum flugfélögum hafi orðið fyrir áhrifum vegna þess. Vonast væri til þess að veður færi skánandi. Icelandair lenti í Reykjavík og á Akureyri Að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, hafa fimm vélar á vegum flugfélagsins lent í Reykjavík í dag. Að auki séu tvær flugvélar á leið til Akureyrar, en þaðan verður farþegum flogið til Keflavíkur þegar veður lægir. Guðni segir líklegt að breytingarnar hafi áhrif á flugáætlun félagsins síðar í dag þar sem einhverjar vélanna eigi að fara til Norður-Ameríku síðdegis. Hann segir Icelandair biðla til farþega sem eru á leið til Norður-Ameríku að fylgjast vel með tilkynningum frá Icelandair um mögulegar breytingar á flugi.