Landsréttur hefur sakfellt Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðing, fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn var kveðinn upp í dag. Steinu er ekki gerð refsing. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi Steinu, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann segir að Steina hafi falið sér að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Málið sé því nú í höndum Hæstaréttar. Sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Steina var sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í desember 2024. Ákvörðun um refsingu var frestað héldi hún skilorð í tvö ár. Hún áfrýjaði þeim dómi. Aðalmeðferð í málinu fór fram fyrir Landsrétti í lok janúar. Steina var ákærð fyrir að hafa banað sjúklingi á geðdeild Landspítalans árið 2021 með því að hella næringardrykk upp í munn hans. Í vitnisburði fyrir dómi sagði hún málið hefði mikil áhrif á sitt líf og að hún væri skugginn af sjálfri sér eftir það. „Líf mitt er búið, heilsan er farin og persónan Steina Árnadóttir er farin. Ég sit hér sem persóna og er bara skel. Steina er farin,“ sagði Steina við aðalmeðferðina.