Icelandair býðst til að sinna Ísafjarðarflugi fyrir meira en tvöfalda kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar

Icelandair var eina flugfélagið sem bauð í rekstur á áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Tilboð félagsins var langt yfir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 1,3 milljarða. Icelandair bauðst til að taka flugið að sér í fjögur ár fyrir 3,5 milljarða. Um 1,4 milljónir á hringferð milli Reykjavíkur og Ísafjarðar Styrkfjárhæðin frá Vegagerðinni á að duga fyrir kostnaði af rekstri leiðarinnar að frádregnum tekjum af miðasölu. Á fjórum árum er gert ráð fyrir að lágmarki 2529 ferðum, minnst tíu á viku á veturna og tveimur ferðum á dag á sumrin. Miðað við tilboð Icelandair er rekstrarkostnaðurinn því tæplega 1,4 milljónir á flug. Við það bætast tekjur af miðasölu. Útboðið gerir ráð fyrir að félagið bjóði um 19 þúsund sæti til sölu árlega. Vegagerðin styrkir flugmiðakaup íbúa á Vestfjörðum gegnum Loftbrúarverkefnið. Vegagerðin þarf ekki að taka tilboðinu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir allan gang á því hvort tilboð séu hærri en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar en þetta sé í hærra kantinum. Vegagerðin er ekki knúin til að taka tilboði Icelandair þó félagið hafi verið það eina sem sýndi áhuga. Vegagerðin getur gengið til samninga eða boðið verkið út aftur. Vonbrigði fyrir Vestfirðinga Gylfi Ólafsson, formaður fjórðungssambands Vestfjarða, segir tilboð Icelandair mikil vonbrigði. Upphæðin hafi komið sér á óvart. Hann treystir á að Vegagerðin og Icelandair finni lausn á málinu enda sé flugið lífæð Vestfirðinga. Hann bendir jafnframt á mikilvægi þess að tryggja órofna þjónustu frá hausti. Þegar Icelandair tilkynnti að félagið hygðist hætta flugi til Ísafjarðar síðasta vor sagði Eyjólfur Ármannsson, samgönguráðherra, að allt yrði gert til að halda áfram áætlunarflugi til Ísafjarðar.