Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum hvetja ungmenni til að ganga býsna langt til að uppfylla staðalímynd um útlit. Meðal annars að sprauta í sig ólöglegum lyfjum og merja andlitsbein. Grípa til ýmissa ráða til að ná fram „looks-maxxing“ Peptíð-amínósýrur hafa vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum meðal ungu kynslóðarinnar að undanförnu, þar sem þær ganga kaupum og sölum. Dæmi eru um að íslensk ungmenni kaupi þessi efni frá útlöndum í vökvaformi, í þeim tilgangi að líta betur út. Fjallað var um málið í kvöldfréttum sjónvarps. Nokkrar tegundir af peptíðum eru til sölu sem eiga að hafa ólíka verkun, til að mynda að vinna gegn öldrun, laga húðvandamál eða minnka matarlyst. Efninu er sprautað undir húð og hefur einn leitað á eitrunarmiðstöð eftir að hafa sprautað sig með ólöglegum peptíðum. Fréttastofa ræddi við íslensk ungmenni sem segja notkun peptíða meðal annars til þess að ná fram svokölluðu „looks-maxxing.“ En hvað er það? Jóhann Kristófer Stefánsson, rapparinn Joey Christ, ræddi málið í Morgunútvarpinu á Rás tvö. „Looks-maxxing er, eins og falið er í orðinu, að maxa lúkkið, líta út eins vel og þú mögulega getur. Fyrir nokkrum árum var bara já, ég ætla að lúkka vel. Þá bara ferðu í ræktina. En þú lítur alltaf út á einhvern ákveðinn hátt.“ Dæmi eru um að áhrifavaldar á samfélagsmiðlum hvetji ungmenni til að merja andlitsbein eða sprauta sig með ólöglegum lyfjum til þess að ná fram staðalímynd um útlit. Jóhann segir hugtakið „looks-maxxing“, eða að hámarka útlitið, koma frá tvítugum bandarískum áhrifavaldi og streymara sem kallar sig Clavicular. Hann er meðal þeirra sem hafa talað um ágæti þess að sprauta sig með peptíðum til þess að hámarka útlitið. „Ég myndi segja að hann sé vinsælasti gaurinn á Internetinu í dag. Hann talar fyrir þessu. Ef maður gúgglar Clavicular færðu fyrir og eftir mynd af honum. Og hann er algjörlega búinn að breytast í andlitinu.“ „Ýmislegt sem við gerum sem er á gráu svæði“ Jóhann segir áhrifavaldinn sjálfan staðhæfa að það séu meðal annars peptíðin sem hann taki sem hafi hjálpað til við breytingarnar. Að hans sögn hjálpi þau til við ýmislegt, til dæmis við framleiðslu á kollageni, endurheimt, hjálpi hárinu að vaxa og jafnvel dragi úr matarlyst. Jóhann segir vini sína hér á landi hafa pantað slík peptíð frá Kína. Þetta sé þó á gráu svæði. „Það er ýmislegt sem við gerum sem er á gráu svæði. Ef fólk vill vera tilraunadýr á sjálfum sér, þá er það þeirra val.“ Jóhann segir að þó sé áhrifavaldurinn Clavicular að grípa til enn örþrifaríkari ráða til að líta vel út. Það sé nokkuð sem kallast „bone-smashing“. „Þannig að hann er með lítinn hamar og er að berja sig í kjálkann og kinnina. Til að búa til „microfractures“, eða örbrot, og það sem gerist er að þú bólgnar upp og þegar bólgurnar hjaðna hefur einhvers konar mótun átt sér stað við kjálkann.“ Samtíminn geti verið óhugnarlegur Jóhann segir að Clavicular sé búinn að vera virkur í lengri tíma á samfélagsmiðlum. Megininntakið í boðskap hans sé að fólk verði að líta vel út til þess að ná langt í lífinu. „Ég horfði á dálítið langt viðtal við hann í hljóðvarpi í síðustu viku. Þar var hann spurður: Finnst þér þetta eina sem skiptir máli, útlitið? Hann sagði já, því ef þú lítur ekki út er ekki tekið jafn mikið mark á þér. Það er alltaf það sem skiptir mestu máli, því ef það er ekki til staðar, þá ertu aldrei að fara að ná „full potential“,“ segir Jóhann. Jóhann segir að persónulega finnist honum áhugavert að fylgjast með þessum áhrifavaldi. „En ég set alveg spurningamerki við fjórtán, fimmtán ára krakka sem eru að berja sig í andlitið með hamri og panta sér peptíð frá Kína. Sem ég held að sé í alvörunni það sem er að gerast núna sko.“ Samtíminn geti þó verið óhugnanlegur. Að því sögðu segir Jóhann slíka áhrifavalda ekki nýtt fyrirbæri. „Það hafa komið tímabil þar sem við erum með stóra áhrifavalda, eins og Gilllz fyrir nokkrum árum. Það kemur alltaf ein og ein umdeild fígúra sem er áberandi,“ segir hann, og heldur áfram. „Ég held að kannski er það líka bara smá í eðli gaura að verða öfgakenndir og fá æði. Og þessi gaur er holdgervingur þess núna. Bara „break your face“ brjóttu á þér andlitið. En ég held að hann sé búinn að draga úr því,“ segir Jóhann.