Ársverðbólga í febrúar mældist 5,2 prósent og stóð í stað frá fyrri mánuði. Hagfræðingur segist sjá merki kyrrstöðuverðbólgu í hagkerfinu og reiknar með auknu atvinnuleysi næstu mánuðina. Þriðja mánuðinn í röð mælist verðbólga töluvert yfir væntingum. Eftir að verðbólga náði hámarki í ársbyrjun 2023 hjaðnaði hún hratt en frá því í fyrravor hefur reynst ómögulegt að koma henni nærri verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er 2,5 prósent. Í raun hefur það markmið fjarlægst síðustu mánuði. Samkvæmt Hagstofunni er árstíðabundið atvinnuleysi 7,3 prósent og eykst nokkuð hratt, en taka skal fram að Hagstofan mælir alla jafna meira atvinnuleysi en Vinnumálastofnun. Þegar verðbólga mælist mikil, atvinnuleysi sömuleiðis og hagvöxtur er lítill er talað um kyrrstöðuverðbólgu. Allt þetta á við um íslenska hagkerfið, segir Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku banka. „Ég held að það sé ekkert óviðeigandi að lýsa því sem kyrrstöðuverðbólgu. Hins vegar held ég að þetta sé tímabundið ástand, að á endanum muni annað vandamálið leysa hitt. Það er að þessi kyrrstaða, þessi aukning í atvinnuleysi, slaki á vinnumarkaði, kólnun á fasteignamarkaði, að þetta ætti allt saman að hjálpa okkur að ná niður verðbólgunni þegar líður á árið.” Hafsteinn býst við að atvinnuleysi haldi áfram að aukast. Fyrirtæki hafi reynt að halda aftur af uppsögnum í von um að eftirspurn taki við sér á ný. „Síðan líða tvö ár og eftirspurn tekur ekki við sér og þá getum við séð fyrirtækin ráðast í hagræðingaraðgerðir tiltölulega hratt. Ég held að við séum að sjá fyrstu merkin um þetta. Atvinnuleysi er að aukast hratt, störfum er byrjað að fækka, sérstaklega í einkageiranum og það er til marks um snöggkólnun.” Vaxtalækkunarferli á ís Næsta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar er 18. mars. Almennt var búist við að seðlabankinn myndi halda vöxtum óbreyttum í þessari atrennu og að vextir yrðu jafnvel lækkaðir í vor. Nýjasta verðbólgumælingin hefur heldur dregið úr þeim vonum. „Skilaboðin frá peningastefnunefnd eru skýr, hún talar enn um í yfirlýsingum sínum að vaxtalækkana sé að vænta en hins vegar segir nefndin alveg skýrt að það þurfi að nást betri árangur í að ná verðbólgunni niður áður en þær skila sér. Þannig að ég held að það sé ekki þannig að vaxtalækkunarferlinu sé lokið en það er alveg klárlega búið að ýta á pásutakkann á því áður en við sjáum verðbólguna fara niður,” segir Hafsteinn.