Regína Ástvaldsdóttir, sem lýsti því nýlega yfir að hún hyrfi úr stóli bæjarstjóra Mosfellsbæjar, mun skipa 7. sætið á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Efstu sex sætin lágu fyrir eftir prófkjör í lok síðasta mánaðar. Þau skipa: Pétur H. Marteinsson Heiða Björg Hilmisdóttir Steinunn Gyðju- og Guðjónsdóttir Skúli Helgason Stein Olav Romslo Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Næstu sæti eru samkvæmt heimildum fréttastofu þannig skipuð: 7. Regína Ástvaldsdóttir 8. Birkir Ingibjartsson 9. Isabel Alejandra Diaz 10. Sara Björg Sigurðardóttir