Dóra Björt ekki á lista Samfylkingarinnar

Dóra Björt Guðjónsdóttir verður ekki á lista Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í kvöld segist Dóra virða niðurstöðu uppstillingarnefndar og muni áfram styðja flokkinn. ,,Viðmið uppstillingarnefndar um breiða samstöðu um skipanir ofarlega á lista gagnast frekar óumdeildara fólki. Það er vilji til breytinga. Án þess að kveða upp neinn dóm um hvort þetta sé rétt eða sanngjörn nálgun þá virði ég niðurstöðuna og mun áfram leggja mitt á vogarskálarnar svo Samfylkingin nái árangri," segir Dóra Björt. Dóra Björt verður ekki á lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor.RÚV / Ragnar Visage