Allar mættu í náttfötum og komu með sitt eigið matarbretti

Luciana Marie Gomez, samfélagsmiðlastjarna, var boðið í svokallað Galentine’s-stelpuboð á Valentínusardaginn þar sem þemað var einfalt en skemmtilegt: Allar mættu í náttfötum og komu með sitt eigið matarbretti hlaðið gómsætum veitingum. Hún minnir á að það sé engin ástæða til að hætta að vera rómantísk þótt Valentínusardagurinn sé liðinn.