ESB-ríki mega nýta sjóði til að greiða fyrir örugg þungunarrof

Framkvæmdastjórn ESB samþykkti í dag tillögu sem gerir aðildarríkjum kleift að nota sjóði sambandsins til þess að greiða fyrir aðgengi að öruggu þungunarrofi. Markmið frumkvæðisins er að auðvelda konum í ríkjum þar sem aðgangur að þungunarrofi er takmarkaður að sækja sér þjónustu annars staðar innan ESB. Kemur í kjölfar ákalls um breytingar Ákvörðunin kemur í kjölfar undirskriftasöfnunar þar sem yfir ein milljón manna innan sambandsins kallaði eftir bættum aðgangi að þungunarrofi. Henni fylgja þó engar breytingar a landslögum aðildarríkja. Þeir hópar sem að söfnuninni stóðu vildu að sett yrði á laggirnar sérstakt fjármögnunarkerfi til að styðja konur sem þurfa að sækja þjónustu til annarra ríkja en framkvæmdastjórnin taldi ekki þörf á nýjum sjóði. Þess í stað geta aðildarríki nú notað fjármagn í sjóðum ESB sem þegar eru til staðar til þess að greiða fyrir aðgengi kvenna að öruggu þungunarrofi. Segir ákvörðunina byltingarkennda „Þetta mun breyta lífi kvenna,“ segir Hadja Lahbib, jafnréttismálastjóri ESB. Hún segir ákvörðunina byltingarkennda. „Kona sem á ekki efni á því að ferðast, á lestarmiða eða flugmiða, eða á því að borga fyrir örugga heilbrigðisþjónustu til þess að fara í þungunarrof, getur nú farið hvert sem er innan Evrópusambandsins.“ Þungunarrof er heimilað í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins en í löndum á borð við Möltu og Pólland gilda strangar takmarkanir. Samkvæmt upplýsingum frá frjálsum félagasamtökum hafa yfir 20 milljónir kvenna innan ESB ekki aðgang að öruggu þungunarrofi.