Sex hundruð fastir á Akur­eyri eftir að á­hafnir runnu út á tíma

Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík.