Ungt og sprækt lið ÍR er komið í bikarúrslit karla í handbolta í fyrsta sinn frá árinu 2014. ÍR var yfir lengst af en KA átti mikinn lokasprett. Að lokum varð spennan ansi mikil undir lokin en ÍR skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok. ÍR og Haukar mætast í bikarúrslitum á laugardaginn klukkan 18:30. Lykilmaður ÍR meiddist ÍR-ingar eru í neðsta sæti deildarinnar en byrjuðu leikinn af miklum krafti. Þeir leiddu 4-1 eftir fimm mínútna leik. Breiðhyltingar léku árásargjarna 5-1 vörn sem náði að trufla Akureyringa. Staðan var 6-3 eftir 12 mínútna leik. Bjarni Ófeigur Valdimarsson sneri aftur í lið KA eftir fjarveru vegna meiðsla. Baldur Fritz Bjarnason, markahæsti maður ÍR á tímabilinu, meiddist um miðjan fyrri hálfleik og gat einungis tekið víti. ÍR náði fjögurra marka forskoti í fyrsta sinn í stöðunni 10-6 eftir 20 mínútna leik. Jökull Blöndal Björnsson dró vagninn fyrir Breiðhyltinga og var með sex mörk þegar flautað var til hálfleiks. ÍR leiddi 16-13 í hálfleik. Breiðhyltingar fundu alltaf svör KA-ingar freistuðu þess að leika 7 á 6 í upphafi seinni hálfleiks til að riðla varnarskipulagi ÍR. Munurinn hélst þó áfram og stóð í fjórum til þremur mörkum fyrst um sinn. KA-menn vöknuðu til lífs og náðu að minnka muninn í eitt mark. Staðan var 21-20 eftir 40 mínútna leik. Elvar Otri og Bernard klipptu ÍR úr snörunni eftir nokkuð hökt á sóknarleik þeirra með þremur mörkum. Þá var staðan orðin 24-20 fyrir ÍR eftir 42 mínútur. Þá fóru ÍR-ingar illa að ráði sínu og fengu tvær tveggja mínútna brottvísanir á skömmum kafla. Því léku þeir fjórir gegn sex í dágóða stund. KA-menn áttu frábæran kafla Alexander Ásgrímsson varði í tvígang í sömu sókn frá Giorgi Arvelodi Dikhaminjia sem hafði verið einn besti sóknarmaður KA þangað til. Á einhvern ótrúlegan hátt leiddi ÍR 26-21 eftir að hafa verið tveimur mönnum færri í tvær mínútur. KA náði að hleypa spennu í leikinn er Bjarni Ófeigur minnkaði muninn í þrjú mörk, 28-25, þegar níu mínútur lifðu leiks. Munurinn var svo orðinn eitt mark, 29-28, þegar fimm mínútur voru eftir. Ágúst Elí Björgvinsson jafnaði svo metin með skoti yfir allan liðlangan völlinn í tómt markið. Skömmu áður hafði hann varið víti. KA-menn náðu þar 7-0 og komust yfir í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 29-30, þegar þrjár mínútur voru eftir. Æsispennandi lokamínútur Daði Jónsson í liði KA fékk rautt spjald undir lok leiks í stöðunni 31-31. Bjarni Ófeigur fékk síðan tvær mínútur eftir að Bernard Kristján Owusu Darkoh sleit sig frá honum. ÍR voru því tveimur fleiri þegar tíu sekúndur voru eftir. Sveinn Brynjar Agnarsson fór inn úr horninu og skoraði sigurmarkið þegar þrjár sekúndur voru eftir. Georgíumaðurinn Giorgi fór illa að ráði sínu síðustu mínúturnar en hann brenndi af þremur góðum færum. Óvíst er með þátttöku Baldurs Fritz í úrslitaleiknum. Hann var með kælingu á ökkla og steig ekki í löppina að leik loknum. Viðtöl og helsta tölfræði birtist innan skamms.