Verzlunarskólinn áfram í fjögurra liða úrslit Gettu betur

Lið Verzlunarskóla Íslands sigraði lið Menntaskólans að Laugarvatni í átta liða úrslitum Gettu betur í kvöld. Liðið var í keppnisham og sigraði með 38 stigum gegn 11. Lið Verzlunarskólans skipupu þau Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann. Menntaskólinn að Laugarvatni komst í fyrsta skipti áfram í sjónvarpsviðureign síðan 1997. Lið skólans skipuðu Þórey Kristín Rúnarsdóttir, Stefán Gunngeir Stefánsson og Allan Holm Rúnarsson. Viðureignin í kvöld var fyrsta sjónvarpsviðureignin af fjórum, í átta liða úrslitum keppninnar. Hér fyrir neðan má sjá þær viðureignir sem eru framundan. Viðureignir framundan 5. mars Menntaskólinn á Egilsstöðum - Borgarholtsskóli 12. mars Menntaskólinn í Reykjavík - Menntaskólinn við Hamrahlíð 19. mars Fjölbrautaskóli Suðurlands - Fjölbrautarskóli Vesturlands Þann 19. mars kemur svo í ljós hvaða lið munu etja kappi í fjögurra liða úrslitum sem hefjast 26. mars, sjálf úrslitin munu svo fara fram þann 10. apríl. Hér fyrir neðan má sjá keppnina í heild sinni. Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann að Laugavatni í átta liða úrslitum Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, í kvöld.