Björgunarsveitir á suðvestur- og vestur vesturhluta landsins hafa haft nógu að sinna í dag. Fjöldi útkalla hefur borist frá klukkan fimm í dag vegna slæms veðurs. Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Þakplötur fuku af húsum í Þorlákshöfn um klukkan fimm í dag. Björgunarsveitin Mannbjörg í Þorlákshöfn var því boðuð út til að veita óveðursaðstoð í bænum. Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Kyndill í Mosfellsbæ komu tveimur mönnum til hjálpar rétt fyrir klukkan sex. Þeir voru á fjórhjólum sem lentu í vandræðum á Mosfellsheiði til bjargar. Mennirnir voru á ferð á Mosfellsheiði á fjórhjólum og höfðu fest hjólin í djúpum snjó. Þeir fundust fljótt og voru teknir blautir og kaldir í bíla björgunarfólks. Fjórhjólin voru losuð úr festunni og keyrð niður af heiði af björgunarmönnum þar sem þau voru skilin eftir. Strætisvagn út af á Holtavörðuheiði Strætisvagn lenti út af veginum á Holtavörðuheiði áður en henni var lokað í kvöld. Hátt í 20 björgunarmenn frá Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga, Blöndu á Blönduósi og Heiðari í Borgarfirði voru kallaði út til að koma um 15 manns úr strætisvagninum niður af heiðinni en rúta var þá komin í Staðarskála til að taka við farþegunum en bílstjórinn verður sóttur sunnan að. Enginn farþeganna slasaðist að sögn Jóns Þórs. Eftir að farþegarnir og farangur þeirra höfðu verið flutt í Staðarskála þurfti að aðstoða talsvert fleiri bíla af heiðinni, þrátt fyrir að henni hafi þá verið lokað. Rétt fyrir klukkan tíu voru björgunarsveitarmenn enn á Holtavörðuheiðinni. Vandræði á Hellisheiði og í Þrengslum Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út um hálf átta í kvöld vegna ferðamanna sem höfðu fest bíl sinn á sunnanverðri Fróðárheiði. Björgunarmenn losuðu bílinn og ferðamennirnir gátu í kjölfarið komist leiðar sinnar. Hjálparsveit skáta í Hveragerði og Mannbjörg í Þorlákshöfn voru kallaðar út öðru sinni í dag, klukkan átta í kvöld, vegna ferðafólks í vandræðum bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Þar var þá orðið nokkuð blint og færð að spillast. Báðum þessum leiðum var lokað og fjölmörgum bílstjórum hjálpað úr ófærð og slæmu skyggni.