Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður KA, var grautfúll þegar hann ræddi við mbl.is í kvöld enda nýbúinn að tapa með minnsta mun fyrir ÍR í undanúrslitum bikarkeppninnar. ÍR skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok þegar liðið var tveimur mönnum fleiri.