„Umbreytingarár“ hjá Sýn

Heildartekjur Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi ársins 2025 námu 6.073 milljónum króna sem er 6% hækkun milli ára. Tap af rekstri Sýnar fyrir árið allt nam þó 634 milljónum þar af var tap af var tap af fjölmiðlahluta Sýnar nam 462 milljónum. Ársreikningur Sýnar hf. fyrir árið 2025 var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir (EBITDAaL) nam 1.339 milljónum króna á fjórðungnum og jókst um 32,3% milli ára. Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir að frádregnum fjárfestingum var jákvæður um 291 milljón króna Fjárfestingar námu 1.048 milljónum. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 384 milljónum króna á fjórðungnum og jókst um 88% milli ára, leiðrétt fyrir virðisrýrnun sem féll til á samanburðartímabilinu. Hagnaður eftir skatta á fjórðungnum nam 122 milljónum króna samanborið við sama ársfjórðung síðasta árs þar sem tap nam 1.194 milljónum króna; leiðrétt fyrir virðisrýrnun á tímabilinu var tapið 33 milljónir króna. Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum námu 327 milljónum sem er 6,1% hækkun milli ára. Aldrei fleiri með farsímaáskrift hjá Sýn „Árið 2025 var umbreytingarár hjá Sýn sem markaði ákveðin tímamót hjá félaginu. Við tókum stefnumótandi ákvarðanir sem renna styrkari stoðum undir reksturinn og móta fyrirtækið til lengri tíma litið,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar í tilkynningu. Á árinu sameinuðust Stöð 2 og Vodafone undir merkjum Sýnar. Í tilkynningunni segir Herdís þessa endurmörkun hafa vakið mikla athygli og aukið vörumerkjavitund almennings. Þá segir hún að aldrei hafi fleiri verið með farsímaáskrift hjá Sýn en heimatengingum fjölgaði um 7% á milli ára. Aðgerðir ársins skili árangri „Við tryggðum okkur á ný sýningarrétt á Enska boltanum og héldum áfram metnaðarfullri íslenskri dagskrárgerð sem hefur skilað sér meðal annars í 48% aukningu í áhorfi á fjórða ársfjórðungi hjá 12–80 ára samanborið við sama tímabil í fyrra. Einnig var SÝN+ sigursælasta einkarekna sjónvarpsveitan á íslensku sjónvarpsverðlaununum sem afhent voru á árinu,“ segir Herdís. „Þrátt fyrir krefjandi aðstæður sýna niðurstöður fjórða ársfjórðungs að aðgerðir ársins eru að skila árangri. Við stöndum því á traustari grunni og förum inn í næsta tímabil með einfaldari rekstrargrunn, skýrari stefnu og aukna getu til að skapa sjálfbæran og arðbæran vöxt.“