Vopnaður maður handtekinn fyrir utan næturklúbb

Vopnaður karlmaður var handtekinn fyrir utan næturklúbb í Tøyen í Osló í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um læti og hugsanlega ógn fyrir utan næturklúbbinn fyrr í kvöld. Þegar lögregla kom á vettvang handtók hún nokkra menn og við handtökuna fannst byssa á einum mannanna. Ekki liggur fyrir hvort einhverjum hafi stafað ógn af mönnunum eða hvað mönnunum gekk til en norska lögreglan rannsakar málið. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.