Framlengja búvörusamninga um ár

Búvörusamningar eru gerðir milli íslenska ríkisins og Bændasamtaka Íslands. Samningarnir eru gerðir til tíu ára í senn en eru endurskoðaðir tvisvar á gildistíma þar sem litið er til þess hvort markmið samninganna hafi náðst og hvort nauðsynlegt sé að gera breytingar. Í rammasamningi er fjallað um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins en síðan eru sérstakir samningar um nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju. Stjórnvöld hafa lagt til að framlengja samningana um ár. „Til að gefa okkur betri tíma til að fara ofan í saumana á þessu og vinna í þeim málum sem við teljum að hafi breyst á undanförnum áratug og þurfi núna að mæta, það er breyttur tíðarandi, við viljum leggja meiri áherslu á atriði eins og nýsköpun og kynslóðaskipti, fjölbreyttari starfsgreinar innan landbúnaðarins og svona mætti lengi telja,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Verkefnið sé stórt og viðamikið enda fari úr ríkissjóði í búvörusamninga ríflega tuttugu milljarðar árlega. Bændur séu ekki of vel haldnir af sinni stöðu um leið og atvinnugreinin sé afar mikilvæg upp á byggðafestu og fæðuöryggi. Kynslóðaskipti séu sérstakt áhyggjuefni. „Það er náttúrulega þyngra en tárum taki að vera með fjölda fólks, unga bændur eða ungt fólk sem vill hasla sér völl í landbúnaði og kemst ekki að eða á þess ekki kost. Þetta kostar mikið fjármagn eins og staðan er að kaupa sig inn á meðan greiðslumarkið er, eða hvernig sem það er, og líka það að þeir sem eru eldri eiga ekki svo auðvelt,“ segir Hanna Katrín. Ráðherra segist viss um að samtalið við Bændasamtökin verði gott, en málið sé flókið og því sé gott að fá viðbótartíma til að ganga í verkið. Aðspurð hvort ætlunin sé að kollvarpa samningum segir Hanna Katrín það svo ekki vera. „Við erum ekki að tala um að kollvarpa neinum samningum, við erum heldur ekki að tala um að það sé augljóst að við höfum þá óbreytta af því að ég held að við séum öll sammála um það að einhverju þarf að breyta. Það þarf að búa þetta starfsumhverfi þannig úr garði að það sé aðlaðandi,“ segir Hanna Katrín. Núgildandi búvörusamningar sem renna út á þessu ári verða framlengdir um ár. Atvinnuvegaráðherra segir ekki standa til að kollvarpa samningunum en þeir verði ekki óbreyttir. Samningarnir kosta ríkissjóð árlega ríflega 20 milljarða.