Pakistanski varnarmálaráðherrann Khawaja M Asif lýsti yfir stríði á talibanastjórnina í Afganistan vegna ítrekaðra árása undanfarna mánuði í einni færslu á samskiptamiðlinum x í nótt þar sem hann segir að þolinmæði stjórnvalda í Pakistan sé á þrotum. Þrátt fyrir allan vilja til að leita friðsamlegra lausna með diplómatískum samskiptum þá hafi það ekki tekist. „Þolinmæði okkar er á þrotum. Nú er þetta opið stríð á milli okkar og ykkar,“ skrifaði Asif í færslu sinni á X. Afganskar hersveitir gerðu árásir á pakistanskar hersveitir á fjölda landamærastöðva á landamærum landanna í gær. Talsmaður talibanastjórnarinnar, Zabihullah Mujahid, sagði árásir afganska hersins vera andsvar við árásum pakistanskra hersveita á landamærum landanna undanfarið. Hann sagði árásina hafa beinst að herstöðvum og hermannamannvirkjum. Samkvæmt Mujahid, féllu tugir pakistanskra hermanna en enn fleiri særðust í árásum. Stjórnvöld í Pakistan hafa ekki staðfest mannfall en í kjölfarið gerði pakistanski herinn loftárásir á Kabúl og Kandahar í Afganistan í nótt. Nokkrar sprengingar heyrðust í borgunun á föstudagskvöld. Ekki hafa borist fréttir af mannfalli almennra borgara eftir árásirnar í nótt. Nokkrar skærur hafa verið milli hersveita landanna undanfarna mánuði en svo virðist sem deilur milli landanna séu að stigmagnast. Torkham landamærastöðinni, sem er aðallandamærastöðin á milli landanna, hefur að mestu verið lokuð síðan í október vegna ítrekaðra árása milli pakistanskra og afganskra hersveita. Um 140 manns hafa fallið fram til þessa í átökum á landamærunum, hermenn jafnt sem almennir borgarar. Stjórnvöld í Katar og Tyrklandi hafa reynt að miðla málum en án árangurs fram til þessa. Hryðjuverkahópur sem kennir sig við Íslamska ríkið og hryðjuverkahópurinn Isis-K lýstu yfir ábyrgð á tveimur sjálfsmorðssprengjum nýverið, í hvorri höfuðborg landanna, Islamabad og Kabúl.