Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að hún hafi aldrei hitt kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Clinton bar vitni um Epstein-málið fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í Chappaqua, New York í gær. Clinton segir að hún hafi verið þráspurð um kynni sín af Epstein og hafi ítrekað svarað þessum spurningum á sama veg. „Ég veit ekki hversu oft ég þurfti að segja frá því að ég þekkti ekki Jeffrey Epstein. Ég kom aldrei á eyjuna hans, ég kom aldrei á eitthvert heimila hans, ég var aldrei á skrifstofunum hans,“ sagði Clinton þegar hún ræddi stuttlega við fjölmiðla eftir vitnaleiðslurnar. Hún segir að undir lok vitnaleiðslanna hafi hún fengið undarlegar spurningar sem voru málinu ótengdar um fljúgandi furðuhluti og samsæriskenningar. Clinton sagðist örugg um að eiginmaður hennar og fyrrum Bandaríkjaforseti, Bill Clinton, hefði ekki vitað af glæpum Epstein. Vitnaleiðslan fór fram fyrir luktum dyrum en vitnisburður hennar verður gerður opinber fljótlega. Vitnaleiðslur yfir Bill Clinton fara fram síðar í dag. Clinton-hjónin hafa ítrekað kallað eftir því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði látinn bera vitni um kynni sín af Jeffrey Epstein.