Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir er snúin aftur í Valsliðið á hárréttum tíma. Valur vann nýverið KA/Þór í undanúrslitum bikarkeppninnar og mætir Haukum í úrslitum á laugardaginn. Leikurinn er klukkan 15:30 í beinni útsendingu á RÚV. Thea tognaði illa aftan á læri á HM í handbolta í desember. Batagangan hefur verið löng og ströng. Hún er einn fremsti sóknarmaður landsins en fer rólega af stað fyrst um sinn og lék aðeins í vörn gegn norðankonum. „Ég tognaði á mjög slæmum stað þannig þetta er búin að vera mjög mikil brekka. En þetta er allt að koma til núna og vonandi gengur þetta áfram vel. Það voru nokkur bakslög í bataferlinu en mér líður mjög vel núna.“ Viðtalið má sjá hér að neðan. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson ræddi við hana eftir leik Vals og KA/Þór. Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir hefur ekkert leikið fyrir Val frá því að hún meiddist á HM í handbolta. Hún sneri aftur í undanúrslitum bikarsins og verður í eldlínunni í úrslitum. Thea ræddi erfiða endurkomu og bikarsárið frá því í fyrra. Lærið rifnaði upp aftur Thea þurfti að hvíla mjög lengi og fór af stað fyrir þremur vikum. En eftir fyrstu æfingu fann hún að lærið var búið að rifna upp aftur. „Ég fór í sprautu fyrir tveimur vikum og það hefur hjálpað. Vöðvinn er aðeins að koma til núna. Líkaminn er fínn eftir þennan leik. Ég spilaði vörn og ég er ekkert endilega að fara inn í hreyfinguna sem er verst í vörn.“ „Ég er tiltölulega nýbyrjuð að vera með á æfingum. Við erum hægt og rólega að malla og prófa mörkin.“ Thea segist aldrei hafa verið svo lengi frá áður. „Þetta er búið að vera ömurlegt að vera bara uppi í stúku. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi frá. Þetta tekur á hausinn og það er ótrúlega gaman að koma inn og vera með stelpunum. Að geta hjálpað þeim eitthvað.“ Duttu út í undanúrslitum í fyrra Valskonur eru í hefndarhug í ár eftir að hafa tapað gegn Fram í undanúrslitum fyrir ári. „Undanúrslitin svíða enn þá. Maður man eftir þessum leik sem við duttum út í. Við erum ógeðslega spenntar og ógeðslega peppaðar.“ Hvernig fer þetta með landsliðið? Ísland á leik gegn Svartfjallalandi 6. mars næstkomandi. Óvíst er hvort að Thea verði í hópnum en Ísland er í slæmri stöðu varðandi hægri skyttustöðuna. Díana Dögg Magnúsdóttir nær ekki leiknum vegna prófa og Birna Berg Haraldsdóttir gefur ekki kost á sér vegna persónulegra ástæðna.