Snjókoma eða él víða á landinu

Í dag verður vestan og suðvestan 8-15 m/s með éljum um landið vestanvert. Það verður sjókoma í fyrstu norðaustanlands en léttir síðan til á Norðaustur- og Austurlandi. Það hvessir um tíma á Norðausturlandi í kvöld. Frost verður á bilinu 0 til 12 stig og verður kaldast í innsveitum norðaustantil.