Íranar bjóðast til að miðla málum milli Afganistan og Pakistan

Írönsk stjórnvöld hafa boðist til að miðla málum milli Pakistan og Afganistan eftir að pakistanski varnarmálaráðherrann Khawaja M. Asif lýsti yfir stríði gegn talibanastjórninni í Afganistan í nótt í færslu á samfélagsmiðlinum X. Yfirlýsing hans kom í kjölfar loftárása sem pakistanski herinn gerði á borgirnar Kabúl og Kandahar og Paktika-hérað í Afganistan. Íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi greindi frá því í færslu á samfélagsmiðlinum X í dag að írönsk stjórnvöld væru tilbúin að veita aðstoð til að hefja viðræður og auka skilning og samvinnu á milli landanna tveggja. Mosharraf Zaidi, talsmaður forsætisráðherra Pakistan, greindi frá því á samfélagsmiðlinum X, að yfir 130 talibanar hefðu verið drepnir og um tvö hundruð séu særðir eftir árásirnar. Pakistanski herinn hefði eyðilagt 27 landamærastefnustöðvar og ýmis hernaðargögn hafi verið eyðilögð. Fréttamiðillinn Al Jazeera greinir frá því að þessar tölfræðilegu upplýsingar hafi ekki verið staðfestar og ekki hafa borist fréttir af mannfalli almennra borgara eftir árásirnar. Samkvæmt stjórnvöldum í Pakistan beinast árásirnar einkum að Kabúl, Kandahar og Paktika-héraði en auk þess beindust aðgerðir gegn talibönum á nokkrum svæðum í héraðinu Khyber Pakhtunkhwa í Pakistan. Talibanastjórnin hefur enn ekki gefið neinar upplýsingar um mannfall í nótt eða tjón vegna loftárásanna.