Koddahjal með Evu Ružu hóf göngu sína á miðvikudag í opinni dagskrá á Sjónvarp Símans. Í þættinum fær Eva Ruza til sín góða gesti í beina útsendingu til að kryfja allt það helsta í heimi raunveruleikasjónvarps. Þar verður farið yfir allt það helsta í líðandi mánuði í heimi raunveruleikasjónvarpsins. Eva kíkti í Síðdegisútvarpið á Rás 2 og sagði þeim Rúnari Róbertssyni og Hrafnhildi Halldórsdóttur frá. Tala um ýmislegt sem gerist á koddum Nafnið Koddahjal var tillaga frá fylgjanda á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem notendur voru hvattir til að senda inn hugmyndir. Koddahjal varð ofan á þó að þáttastjóri og gestir liggi ekki beinlínis á koddanum þegar farið er yfir allar hliðar á vinsælasta raunveruleikasjónvarpinu. „Við ætlum ekki að liggja á koddunum en við munum tala um ýmislegt sem gerist á koddum í þáttunum. Eins og í þessum fyrsta þætti tökum við fyrir Love Island sem er stærsta raunveruleikasjónvarp í dag um allan heim.“ Eva mun ásamt gestum sínum kryfja Love Island og í framhaldi af því The Real Housewives sem einnig eru geysivinsælir. „Það verður sitt lítið af hverju.“ Tungan komin upp í næsta mann Þættirnir eru sem fyrr segir í beinni útsendingu og Eva bendir á að hinir ýmsu fótboltaþættir, má til dæmis nefna Stofuna á RÚV, snúist um að sérfræðingar kryfji íþróttaleiki í beinni útsendingu og þeir hafa sannarlega slegið í gegn. „Ímyndið ykkur alla þessa fótboltaþætti sem eru í gangi núna þar sem þeir eru að horfa á klippur og greina. Nú er komið að okkur sem erum aðdáendur raunveruleikaþátta,“ segir hún. „Við horfum á klippur og ræðum það sem er að gerast í þeim.“ Þau sem fylgjast með raunveruleikaþáttum, eða allavega þeim sem snúast að einhverju leyti um stefnumótamenningu, vita að í þeim er mikið kossaflens. Það verður rýnt í það sérstaklega. „Við erum að fara að sleikgreina, ég veit ekki hvort þetta sé orð en þetta er allavega orð núna. Fólk er að kyssast og tungan er í hvert einasta skipti komin upp í næsta mann.“ Þátturinn verður á léttu nótunum og Eva og gestir munu hafa húmorinn að leiðarljósi. „Fólk mun setjast og hlæja og þú þarft ekki endilega að vera all in í raunveruleikaheiminum, þú getur sest og horft á þetta þó þú vitir ekkert hvað er að gerast.“ „Eva er með geggjaða hugmynd“ Hugmyndin að þáttunum kviknaði upphaflega hjá Evu sem bar hana undir vin sinn, Hjálmar Örn Jóhannsson sem er gestur fyrsta þáttar ásamt Evu Laufeyju Kjaran. „Þetta er hugmynd sem ég hafði gengið með í maganum í nokkurn tíma og ég segi honum Hjálmari mínum frá. Eins og allir vita erum við mjög náin vinirnir og við vinnum mikið saman,“ segir Eva. Þau voru stödd í höfuðstöðvum Símans á fundi um annað mál þegar Hjálmar ákvað að láta vita af hugmynd vinkonu sinnar. „Ég var þarna búin að segja Hjálmari hugmyndina og honum fannst hún geggjuð,“ segir Eva. „Við löbbuðum út af fundinum og Hjálmar snýr sér við og segir: Eitt hérna, Eva er með geggjaða hugmynd að sjónvarpsþætti.“ Evu fannst hugmyndin ekki nógu úthugsuð á þessari stundu til að vera borin á borð. „Ég hugsaði nei, uss ég er ekki búin að þróa hana nægilega,“ rifjar hún upp og hlær. „En þau gripu þetta á lofti og svo byrjaði boltinn að rúlla.“ Nú er hún þakklát vini sínum fyrir opinberunina. „Ef ég hefði bara farið heim til að móta hugmyndina betur væri ég kannski ekkert að byrja með þennan sjónvarpsþátt,“ segir hún. „Síminn tók þetta og er búinn að gera litla fræið mitt að einhverju miklu stærra og flottara.“ „Fólk er að kyssast og tungan er í hvert einasta skipti komin upp í næsta mann,“ segir Eva Ruža sem kryfur vinsæla sjónvarpsþætti Sjónvarps Símans, í nýjum þáttum sem nefnast Koddahjal.