Talsverðar raskanir hafa orðið á umferð vegna vetrarveðurs. Í byrjun dags eru nokkrir vegir enn lokaðir en unnið er að því að opna þá. Holtavörðuheiðin er lokuð vegna óveðurs en hjáleið er um Brattabrekku og Laxárdalsheiði. Fróðárheiði er lokuð og hálka á flestum vegum á Vesturlandi en þungfært á Útnesvegi. Fjarðarheiði er lokuð og ófært er um Vatnsskarð eystra, Öxl og Breiðdalsheiði. Flughált er á Fagradal og hálka víðar á Austurlandi. Nýjustu upplýsingar um færð á vegum má nálganst á umferðarvef Vegagerðarinnar.